top of page
Grandi Live
Lifandi tónlist með Elín Ey


Hvenær og hvar?
25. nóv. 2026, 18:30 – 20:00
Grandi restaurant & bar, Seljavegur 2, 101 Reykjavík, Ísland
Other dates
Um viðburðinn
Grandi Restaurant & Bar x Elín Ey bjóða í notalega kvöldstund þar sem Elín flakkar um sólóferilinn sinn, bara hún og gítarinn.
Fumsamin lög frá ýmsum tímum ferilsins, og hver veit nema eitt eða tvö vel valin cover læðist með. Notaleg kvöldstund með einni af þekktustu röddum landsins.
Elín Ey hefur meðal annars ferðast um heiminn sem solo listamaður, sem söngkona með Hercules and Love Affair, keppt í Eurovision með Systrum og er annar helmingur dúettsins TÁR. Hér fáum við hana í sinni einlægustu mynd.
Komdu snemma, fáðu þér sæti og eitthvað gott í glasið, og njóttu tónlistarinnar í góðum félagsskap.
Aðgangur: ókeypis
bottom of page
.png)